Gatan er geðveiki
að ganga um og guða
á gluggana vitandi
að köld kúla mín bíður
merkt mínu nafni og lífi

banka á dyrnar
með hlaupinu hleypi af
ætli fólkið inni sé að mála gólfið?
Því þessi fallegi rauði litur
rennur undan dyrunum.
—–