eða hvað finnst þér samviska mín?
einn mola eða tvo?
og smá sektardropa út í?
En hvað bollastellið er flott
utan um hugsanir þínar
hegðunarmunstrið myndar
svo falleg form.
Má bjóða þér meðlæti?
minningarbrot og brauð
og smurðu svo sorg yfir
það ku vera gott saman.
—–