Þjáningin er þrúgandi,
þrekið mun duga skammt.
Lygarnar eru lýjandi
látlaust þú sleppir þeim samt.

Særð ég er og svívirt
sem kolótt villidýr
Máttvana bráðum verð ég myrt
meðan hatrið í sálinni býr.