mannorðsmorð?
hefurðu slæmt á samviskunni
eða eru þau mörg
hvílík vargöld
í höfðinu á þér
slítur sundur samviskan þræði geðheilsu þinnar
lemur bjöllur og brýtur
niður mannvit þitt merg og bein.
Þar til hugsun ein
lýsir upp rústirnar
og sést lítið eitt blóm
vaxa úr hugskoti þínu
góð hugsun
í rotnum haus
en þú verður aldrei laus
við vítið í viðjum vitundar þinnar
en þú vissir það
ekki satt?
—–