Ganga yfir gribbur tvær
og lýsa loftið lævi þrungið
rauður glampi glímir við regndropana um athygli mína
að baki mér gellur við vélarflaut
ég stíg niður fæti
og treð bikaða slóð yfir gatnamótin.

svo kemur aftur rautt.
—–