Gráttu ekki barnið sem lífið lét í gær
Í guðs faðmi það situr og dillar sér og hlær
kvölin er loks horfin og gleðin endurheimt
og barnið litla, ljúfa vel í hjörtum okkar geymt.

Við ætíð munum muna brosið undurblítt
og hjarta litla barnsins sem var svo hreint og hlýtt.
En líkaminn var veikur þó sálin væri sterk
og morgun einn guð færði það í hvítan englaserk.

Það brosir nú og brosir daginn út og inn
ánægt með heilbrigða líkamann sinn.