Sá sem horfir á mig
sér mig ekki,
skilur ekki
og veit ekki hvað það er
sem er ég.
Sá sem horfir á mig
sér aðeins það
sem ég vel fyrir hann að sjá,
og skynjar einungis atferli mitt
á þeirri stundu er við mætumst.
Því sá sem sér mig
lætur ekki eins og ekkert sé
heldur mætir augnaráði mínu,
og sér mig.
Því hann skilur,
og þekkir þá varnargarða
sem standa fyrir framan sálina
og varna þér inngöngu.
En hann veit einnig
að við þetta augnaráð er ekki að fást
því ég vil ekki
að þú sjáir mig,
dæmir mig
og rannsakir mig.
Því það er minn sjúkdómur,
og þess vegna sérðu mig ekki
og veist ekki hver ég er.