Doðinn færist yfir eins og þykk þoka á köldum vetrarmorgni.

Tilfinningar óskast á gott heimili,
bæði góðar og slæmar.
Allt er betra en tómarúmið.
Tilbúin að borga uppsett verð,
jafnvel morð fjár.

Leigi amerískan tilbúning og kreisti upp tár. Les minningagreinar og held um hjartað líkt og það væri ég sem þjáist úr ástvinamissi.

Ég gefst upp og kaupi hamingju í kókflösku.