Tunglið á tíkall
endurkastast af silfrinu
norpandi næturhúmið
er kreistir allt líf
úr seinustu laufblöðunum.

Ég traðka á mósaíkmynd þeirra
en ósköp varlega
hlusta á dauðaskrjáfið
áður en vot gröf malbiksins
skolar þeim að næsta niðurfalli.
—–