Aukfúsinn auðugi
Aukfúsinn auðugi
Aukfúsi auðugur
Arkar niður
Betlarana rænir
Barónana biður
Credó hans daglaun
Deilir hann ei
Efnamaður elur sér
Eigi efnafæð
Fabúlerar fágun
Fagnar fátækt annarra
Gáfulegur gagari
Gambrar gjamminn sá
Hagsbót hans er
Hálaun leyfa
Innistæðan iðar er
Inn leiðast seðlarnir
Jaðrar við jarg
Er jarðir eignast
Krónurnar köldu
Kæla hanns skap
Lagarefur læðist um
Lýsandi eign sinni
Málarekstur og málavextir
Mikla höfðingjann
Náunganum nepurð sýnir
Náðar ei af skuldum sínum
Óbilandi óblíðska
Í eigin ofríki
Peningar, peningar
Peningamaðurinn
Rænir með ráðum
Án raungætni
Safnar sölum
Sígræðandi
Tíminn tifar
Tíminn eru peningar
Ugglaus umgangsmaður
Umlar ,,Græða’’
Valdamaður váljúgur
Vantar meira fé
Ybbinn yfirbugar
Ýmiskonar smábúa
Þágar þambarinn
Þurfalingana þá
Æðrast ei ofærslin
Í æsingamönnunum
Ögrar öryrkjum
Öngvegum milli.
Ath. ef þið eruð ögn sljó (það er aldrei að vita) þá eru ljóð- og höfuðstafir Í stafrófsröð. Þetta hefur máski smá áhrif á orðaval.