“Gerðu eins og þér er sagt”,
ég geri það og blóðið rakt
lekur niður litla skrokkinn
svíður,verkjar í allan kroppinn.
Ég vil öskra og arga
ég vil blóta og garga
en það vær´ekki til neins,
þetta er og verður eins.
Hann mig lemur og ber
hann inn í mig fer
og hjarta mitt drepur og kvelur
og sál sín sjálfur hann selur.
En ég segi ekki orð
þótt hann fremji sálumorð
og fullnægi sér
hann er nefnilega skyldur mér.