eins og hetjur fortíðarinnar
á glæsifák
svífst einskis
virði að vettugi
rautt að framan
blátt að aftan
þó það stoppi mig
mun gull fjúka
og mér er sama
þó tvöfalt sé
því ég er -
nikka frændmenn
við luktar dyr
og lýk þeim upp
blikka skjátu
sem tölu upp gefur
…fokk
ég á engan pening.
…helvítis kreppa