Ákvað að henda fram einu litlu ljóði tileinkuðu dagsrisunni.
Eitt lítið tóm
og myrkrið svo mjúkt
áður en nótt dagar uppi
og skýin hátt og snjallt
tilkynna komu sólar.
Eftir rauðum dregli
er lagður er á snjóföl
gengur svo sólin með hirð sinni
niður heiðina
og heilsar hneigjandi húsum.
—–