Yfir þér flýtur bensínlitaður himinn
og í rökkrinu fjúka börn haustins til hafs.
Með golunni berst þér lágt suð frá æðakerfi borgarinnar
eins og undurhljóð barnagæla
en hvar eru litfagrir sumardagar
í þessu steinsteypta völundarhúsi?
Stakt fræ biðukollu svífur upp og finnur sér stað
í grasi grónu gili, innan um hvassa steina,
næsta sumar vex þar blóm.
þannig eru dagar þíni