Ekki sofa meðan Ísland kallar!

Hlustarðu ekki á landið þitt?

Heyrirðu ekki þjóðina hrópa?

Hlustaðu nú vel á ljóðið mitt!



Svo er sagt að þú hafir tekið þátt!

Það segir bros með beittar tennur…

en hafðir þú pening? hafðir þú mátt?

Kveiktir þú bálið sem nú brennur?



Ætlar þú að láta ljúga að þér

og leyfa þeim að komast undan?

Nei, vertu frekar í liði með mér

og mundu að þeir eru hundar

sem bíta og gelta fyrir góð bein

bónusum upp úr þínum vasa!

Við megum ekki verða alltof sein

við megum engum tíma tapa



Birtist upphaflega á blogg.visir.is/snaebjorn