Er ég hugsa til til valdsins æðra
ég hugsa um leið til 3. heims mæðra,
sem þurfa svo ótal margt að þola
með sálir brotnar í þúsund mola.
Þær horfa á sitt eigið blóð,
barna sinna táraflóð
barsmíðar og brotin bein
vanlíðan og hungurvein.
Ég get ei annað en grátið sáran
er ég hugsa um allan fjárann
sem ég kvartaði eitt sinn yfir
en nú ég þakka guði fyrir
að mega lifa,leika og anda
án þess að kljást við hungursins fjanda.