Þú.
Þú fangelsar hug minn.
Ég get ekki hætt að hugsa,
hugsa um þig.
Þú ruglar í tilfinningum mínum.
Ég veit ekki lengur hvað ég vil.
Einn daginn þrái ég þig,
annan daginn þoli ég þig ekki.
Þú rífur tilfinningar mínar
upp með rótum
og flækir þær.
Af hverju segirðu mér ekki hvað þú vilt?
Þá kannski fengi hugur minn frið…