Hjúfra að mér
hvítum breiðum rósa
veðrið svo ljúft og lokkandi

hér inni er gott
svo gott
að vera.

Hjúfra mig saman
í heimi mínum
ver mig gegn vá og vonsku

lít upp að raunveruleikanum
andlit móður minnar
frosin tárin kristallast

þau rífast enn,
hvenær hætta þau?
hvenær?
—–