Vertu sæll Guð
hví leggurðu á þig þetta puð?
að skapa misvitra menn
sem eyða munu jörðinni senn
sem sakleysinu tapa
samt ertu þetta að skapa?

svona sé ég heiminn í dag
þetta er víst þitt fag
en gætirðu gert betur?
sjáum nú hvað setur.
eitt reyndar ég ekki skil
ertu í raun og veru til?
—–