Ég brenn!!!
Tilfinningar sem ég fæ ekki ráðið við
brenna mig.
Inní mér logar bál
svo heitt,
svo brennandi heitt
að ef ég gæti snert það
myndi líkami minn standa í ljósum logum.
Þetta bál eru tilfinningar
sem ég get ekki stjórnað.
Tilfinningar sem buga mig.
Ég get ekki slökkt þetta brennandi bál.
……………Því ég týndi slökkvitækinu.