rigning
lemjandi höfðinu upp við vegginn
og ég átta mig
skrifandi: ég elska þig
í móðuna á glugganum
og ég átta mig
grátandi
og ég átta mig
ég átta mig á því að
ást mín er jafn vonlaus eins og tár mín
ég átta mig á því að
tár mín eru til einskis
þau munu skolast í burtu með rigningarvatninu
og munu að lokum hverfa
gufa upp
verða að engu