sjáið sjáið, við eigum flest:
heimili, mat og frið fyrir svefn
atvinnu, samvinnu frá vinum
idol og netið og nóg af bíomyndum
áfengi og eiturlyf fyrir fíklana
áflog á djamminu, og opinn spítala
feminista, klámbúðir og kríngluna
óvopnaða löggur sem við stingum af

við eigum frið, við eigum stríð
ég á vin ég á gott líf
við höfum íhaldsemi og hippa
bókaorma og gelgjur sem vilja ekkert vita
við eigum náttúruna, við eigum spillingu
við eigum álver, við eigum rigningu
við eigum sól við eigum snjó
við eigum kaldan brimbrjótandi sjó

en þau eiga ekki mat, eiga ekki rúm
eiga ekki draum en vilja vera þú
eiga ekki von, eiga ekki lengur son
eiga bara hungur eiga bara sorg
eiga ekki samfélag bara niðurnýtt þorp
eiga ekki öxl til að gráta á
eiga ekki vin þegar eitthvað bjátar á
eiga ekki vatn, en eiga þorsta
eiga ekki gleði eiga ekki losta

og þú segir að þitt líf sé harðindum
hættu að væla og reyna að betla athygli