Þetta er ljóðabók sem ég samdi ásamt vinum mínum á leið suður til Reykjavíkur frá Akureyri. Við vorum að koma úr skíðaferð í einmaleika mínum keypti ég mér skrifblokk og penna til þess að fara að skálda og var afraksturinn bundinn í bók sem prentuð var í örfáum eintökum. Hét sú bók Svartskinna - þ.e. hugðarefni mín og rit. Hér birtist hún á Huga, ykkur vonandi til ómældrar ánægju. Höfundalisti er síðan neðst í greininni
————————————–
Í hringiðu lífsins
Ég… Ég sem þetta ljóð
Núna
Ég vil lepja undan hestastóð
Núna
Á ögurstundu breytist fjara í flóð
en ég sit í eymd og yrki ljóð
um fljóð svo rjóð
Ég er Yoda
Um nytsemi sauðfjár
Það er getið, það fæðist, það vex
Því er slátrað, það borðað og melt
Svo miklu betra en hafrakex
og auðvitað betra en brauð úr spelt
-Til Auðar
Eitthvað betra
Grámóska. Þungi hvílir á mér
Eins og mulningsvél…
…eilífðarinnar
Og ég fell
Kaldur veruleiki
Elías í bræði burt
með bólginn böllinn veður
Þrykkir hann og þjappar þurrt
Þykist hafa reður
Lífið
Lífið er eins og að hlaupa
á rúðu. Það
bíður manns ekkert betra en
glerbrot
Sem festast í hörundinu
Litur tómsins
Ég sit við flugbeitt borðið
og lita mynd með vaxlitum
því líf mitt hefur glatað
öllum sínum lit
Stæling
1. September
-Ágúst búinn
WYHA
Lífið, hauslaus hani
hleypur og hleypur
en ekkert fær hausinn
til að gróa aftur
Næturlíf
Þrýstin, brotin
orkuþrotin
svitastorkin
skítt með morkin-
skinnu
Ákveðnar manneskjur
Knattspyrna er eins og
kynlíf með mjög feitri konu
Maður athafnar sig á
stórum velli, skorar í stórt
mark og fer svo í vörn
Digt
En dejlig digt. En dejlig
digt. En dejlig digt. En
dejlig digt. En dejlig digt
og så er det overstået
Jeg bliver død
Sveitasæla
Sveitasæla
börn að leik
snjóflóð
börn að leik ekki
meir
Vessló
Ef þú vilt leggja mat
á útlit mitt, hafðu það
þá fisk
Lyktin er góð
Fálmarar fjandskapar
Í dag sá ég myrkrið
Það teygði sig í átt til mín
Það vildi mig, þráði mig
Ég neitaði
Þvílík örlög
Ég sit í rútu
á rútuferð í svartnætti
inn í tómið
-Skyndilega birtir til
en rútan heldur áfram
[0;∞[
Lífið byrjar
en endi tekur það engan
því ég held áfram
Jafnvægisgaur
Sveittur borgari situr
á disk
En svo stendur hann
upp og nýtur sinna
réttinda
Horft til himins
Þetta er ekki hægt
Léttitækni
Mér var nauðgað
í gær
Óður til Egga
Vertu í fötunum!
Ekki drepa mig!
Hvar er djammlagið?
Stern des Südens
Ég horfi í eilífðina
og spila póker
Kvikuslettur vinna
með royal flush
Leikurinn
Líf mitt er leikur
alltaf sami leikur
dag eftir dag
tapaður leikur
Game Over
Napur Vindur
Freðinn, skemmdur
Grettisfangi
tóftir áss í lausungi
Vír
Forrest Gimp
Ljóð eru eins og konfektkassi
þegar hann er fullur
getur þú valið mola
en þegar færri molar eru
getur þú ekki valið
eins mikið
Skommzl
Skoooooooooooooooommzl
Síðdegisblíða
Lífið er eins og Tetris
Það gengur upp í fjóra
og þegar þú færð 100.000 stig
þá kemur eldflaug
Sortuæxli
Hann var fallinn
en svo sá hann ljósið
þrisvar í viku
og sótti um í Verzló
-Til Halldórs og Einars
Höfundar
Í hringiðu lífsins = Arnór
Um nytsemi sauðfjár = Arnór
Eitthvað betra = Arnór
Kaldur veruleiki = Arnór
Lífið = Aðalsteinn og Arnór
Litur tómsins = Elías
Stæling = Arnór
WYHA = Aðalsteinn
Næturlíf = Arnór
Ákveðnar manneskjur = Elías
Digt = Arnór
Sveitasæla = Aðalsteinn
Vessló = Elías
Fálmarar fjandskapar = Aðalsteinn og Arnór
Þvílík örlög = Arnór
[0;∞[ = Egill
Jafnvægisgaur = Elías
Horft til himins = Arnór
Léttitækni = Aðalsteinn
Óður til Egga = Arnór
Stern des Südens = Elías
Leikurinn = Aðalsteinn
Napur vindur = Arnór
Forrest Gimp = Aðalsteinn, Egill og Elías
Skommzl = Aðalsteinn
Síðdegisblíða = Aðalsteinn, Arnór, Egill og Elías
Sortuæxli = Arnór
-Ég er semsagt Arnór
Takk fyrir lesturinn