lítið jólaknekti
ramblar á súðinni
en um leið
norðan súðarinnar:

buxi bambíbamm
strýkur stjörnunni
jólastjörnunni?

lítið jólaknekti
ramblar á súðinni
en um leið
sunnan súðarinnar:

jólin allra barna
jesú bróðir bjarna

lítið jólaknekti
ramblar á súðinni
en um leið
austan súðarinnar:

lítið jólaknekti
í jólakjóli

lítið jólaknekti
ramblar á súðinni
en um leið
vestan súðarinnar:

ég
nakinn
oní árabátnum





stýmir strimils 2001