opnaði ótal lása og rykfallnar hirslur
flestir voru stífir
höfðu greinilega aldrei fyrr verið opnaðir
loks fann ég það umvafið barnslegri einlægni
lagði loks mjúkt sláandi hjartað
ofurvarlega í fíngerða lófa þína
leyfði þér að fá lánað
Veit ekki hvenær þú skilar því…
en eftir standa hin fyrstu fingraför
sem engin nær að afmá
hvorki í þessu lífi né því næsta
“True words are never spoken”