hljóð
berst inn
útilokar rök
innlimar ástríðu
blóðið rennur hraðar
félagslegt taumhald hverfur
lamandi takturinn dynur í eyrum
hleður inn hugsunum um ofurmennsku
ryður í burtu tilgangslausri visku og kunnáttu
rífur upp gamlar tilfinningar og ræsir aðgerðarham
saumar andlegra sára springa og blóð rennur
reiðin kraumar og æpir ærandi á hefnd
titrandi bítandi eggið klífur loftið
neyðir sig inn í ósaklaust líf
dýrslegt eðli stynur hátt
öngþveitið smitast
önnur líf hlaupa
ringulreið
morð