grasið og engið horfir á móti
stóreygt með djúpum fagurgrænum bjarma
geng að því og stari lengi hugfallinn
tými ekki að slíta það frá jörðu
því þá mun það fölna brátt og síðan deyja
bakka og horfi yfir spegilslétt engið
og sé skyndilega öll hin öðruvísi blómin
sem vilja vera týnd áður en veturinn kemur
Cruxton
“True words are never spoken”