Til hvers ertu kominn nú
sá er hata mest ert þú
Ekki segja neittt við mig
ég vil ei þurfað særa þig
Stundum sárt ég sakna þín
samt þú hugsar ei til mín
Hjarta mínu stóðstu á
trampaðir og fórst ei frá
fyrr en það var orðið seint
hjartað verður aldrei hreint
Því að það sem gerðir þú
komst til mín og stendur nú
fyrir utan, galar hátt
hurðin opin upp á gátt.
Villtu ekki fara frá
ég vil þér ekki vera hjá
reyndað skilja verknað þinn
reyndað horfí hjartað inn.
Sérðu ekki sárið þar
sárið þetta ekki var
Þarna er fyrst hitti þig
þú hefur næstum drepið mig.