ég held ég skynji
þig.
Viti hver þú ert
Þekki huga þinn.
Skynja vonir þínar
og þrár.
Ótta þinn, hræðsluna.
Finn undirtóninn.
Leitina og lífsþorstann
kraftinn.
Ég þekki og skil
Hikið og óstignu sporin.
Ég sé blíðuna, fordómaleysið.
Þrjóskuna, já og afneitunina.
Ég skynja skil og þekki
þig
held ég.