I. Tökum enga fanga
Hugur þinn
er fangi minn
No trade.
II. Smá garl..
Í álög þig ég legg
Í huga þinn svo hegg.
Þar útúr streymir
allt sem þig dreymir.
Sjáðu, svo er hann fullur af órum,
fölum tórum
og smáglórum.
Hey, þarna er skuggi,
er það sem þig uggi,
að þér yfir vofi, vá?
Viltu sjá meira.? Má,
bjóða þér á mála hjá,
oss portkonunum, við að tjá
það sem hér er að fá.
Það myndi auka hagnað og flýta allri afgreiðslu.