Hjarta mitt.
Hjarta þitt.
Hjörtu okkar.
Slá takt í takt.

Þúsund orð lýsa ei
Hve mikið hjarta mitt ann þér.
Þúsund orð lýsa ei
Hve sárt væri að missa þig.

Hjarta mitt.
Hjarta þitt.
Hjörtu okkar.
Slá takt í takt.


Ég þrái þig svo heitt
Að bráðni kaldur ís
Ég þrái þig svo heitt
Að hjarta mitt það frýs

Hjarta mitt.
Hjarta þitt.
Hjörtu okkar.
Slá takt í takt.


Ég vildi að til væri aðeins eitt orð
Sem útskýrði fyrir þér
Hve heitt þig ég þrái,
Hve heitt ég ann þér.

Hjarta mitt.
Hjarta þitt.
Hjörtu okkar.
Slá takt í takt.


Þó sofi ég í heila öld,
Þá dreymi mig alltaf þig
Þó vaki ég í heila öld,
Þá sé ég aðeins þig.

Hjarta mitt.
Hjarta þitt.
Hjörtu okkar.
Slá takt í takt.


Ég vil að þú sjáir ást mín‘á þér
Ég vil að þú sjáir hvað hugur minn ber
Ég vil að þú sjáir hvernig hjarta mitt er
Ég vil að þú sjáir hver ég er.

Hjarta mitt.
Hjarta þitt.
Hjörtu okkar.
Slá takt í takt.


Ég vildi að til væri aðeins eitt orð
Sem lýsti þér hvernig mér líður.
En þú veist hvar ég er, bíð eftir þér.
Hvað sem á mig þrýtur.


-Kristjana