Dagurinn verður að draumi, draumurinn verður að nótt, nóttin verður að gleði en gleðinni verður ei rótt. Senn verður allt að enda þó ekkert bendi til. Að hrapa í stað þess að lenda, nú er allt búið um bil
Hélt að það væri pínu bjartara yfir smiley, en þessi ljóð þín gefa til kynna. vonandi aðeins tilfinningar sem lýsa ekki því sem er að gerast í huga þér núna.. því lífið er víst aldrei búið, nema við sannfærum sjálf okkur um það… hafðu það gott, kveðja jath
Það er bara stundum svona:) ekki getur allt verið gott. Þetta lýsir líka ágætlega sambandi sem var ekki of gott milli vinkonu minnar og vinar. Bara samið í momentinu. Takk fyrir jath. kveðja Smiley (dís)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..