Nóttin skilur öll mín sár
nóttin sér mig alla
af vanga stríkur bitur tár
er óðar niður falla
Máninn syngur sofðu rótt
máninn skilur tárin
Sofðu sofðu allt er hljótt
máninn læknar sárin
Dagur kemur Dagný mín
dagur engan blekkir
dagur sýnir sárin þín
öllum sem þú þekki