Mig langar svo heitt að eiga þig
en allt kemur samt fyrir ekki.
þú hreinlega villt ekki elska mig
og heldur að ég þig ei þekki.
Af öllu hjarta ég þrái þig
þú ert svo falleg og fríð,
því villtu bara’ekki elska mig
ég eftir þér ætíð bíð.
Ef aðeins ég fengi að kyssa þig
kossinn sá yrði mjög heitur,
en þú vilt samt bara’ekki elska mig
í hjartanu rís minn grafreitur.
Nú sit ég á himnum og hugsa um þig
hjarta mitt hefur þú hjá þér.
Þá aðeins þú hefðir elskað mig
þér væri hjá en ei hér.