Hratt líður tíminn án þín…
Hratt líður tíminn áfram án þín,
Hraðar en áður…
Þegar þú brostir til mín,
Þá virtist allt svo léttara,
Þrautir og sorg…
Liðu eins og skuggar út á tímans torg.
Hægt hefur sorgin unnið á mig,
Tel það bót…
Hversu vel ég geti munað þig.
Hvert einasta hár…
Hvert bros, hvern hlátur og hvert gleðitár…