Ég sit og rugga mér!
Ég hugsa um hafið.
Myndvarpinn stendur á
miðju gólfinu og
minnir á skipið sem
siglir á hafinu.
Kerlingin talar og talar
líkt og skipstjórinn.
Nemendurnir fylgjast með
og hlíða skipunum eins og
sannir hásetar.
En ég, hver er ég?
Ég er laumufarþegi,
skil ekki neitt og get ekki neitt.