Sjúgðu í þig sál mína
og sleiktu út um
er þú engist
af ánægju
í faðmi mínum
fingur mínir visna
á fölu hörundi þínu
og í gleiðu glotti
sést blóð mitt
storkna.
—–