Við (bara í öðrum heimi)

Hún tók í hönd mína,
baðaði út vængjunum
og brosti.

Haltu, sagði hún,
og ekki sleppa.

Svo gengum við saman
Yfir regnbogann.