Ég sé þig gráta, það grætir mig
Ég sé þig þjást, það þjakar mig
Hvern dag sem þér líður illa
dey ég innra með mér
Ég vildi óska að ég gæti hjálpað þér
og losað þig undan þjáningunum,
en ég veit ekki hvernig
En þú veist að ég er alltaf hér,
að eilífu að reyna.
Frá mér.