Þetta er ekki ég

Hvað gerðist og hví?
Hví er ég hér?
Ég ligg, sé aðeins hvítt
Lýt upp, og sé
Sé að þar stendur þú
Ég lýt í augu þín
Þú hjálpar mér upp
Þar sé ég
Ég sé spegil
Nei, nei, nei
Þetta er ekki ég.
Ég hleyp í burtu
Hraðar en nokkurntímann áður
Ég er frumskóg kominn í
Hleyp hraðar og hraðar
- Ég hrasa.
Þú birtist aftur
Og hjálpar mér upp
Ég hleyp af stað
Hraðar, hraðar, hraðar
Ég hleyp inn í stjörnurnar
- Ég hrasa.
Þú birtist aftur
En, hvað nú?
Þú hjálpar mér ekki upp.
Í staðinn grætur þú
Líkami þinn vafinn tárum
Þú lokar augun þínum
Og ég mínum
- Við hverfum á braut

Tryggvi Islandus