Hittumst , sáum ekkert
töluðum, heyrðum ekkert
elskuðumst , snertumst ekki

Orðin þín
orðin mín
framandi tunga

Þú nærðir sál mína
opnaðir hjarta mitt
litróf - engu líkt

Hjarta mitt
sál mín
flugu burt
merkt: Móttakandi; Þú

Sakna þín
þrái þig
höf á milli


Irma