Vonin um hlæjandi vorið
vaknar í hnédjúpum skafli.
Blíð vonin hefur mig borið
og blessað með draumanna afli.
Vonin um brosandi gróður
vaknar við frostbit og kul.
Voldugur vorsins óður,
kallar á blómin gul.
Vonin um sólina og varmann
vaknar við beinbrot og ís.
Ef vonin mín deyr í gifsi
er voðinn vís…