Vegurinn

Þokan leggur leið sína um langa veginn minn
ég veit ekki hvað er að gerast
Finn ekki tilganginn
hef leitað svo lengi, er orðin svo þreytt
þreytt á því hvað allt er nú breytt

leið mín hlykkjast
í bylgjum hún gengur
en á enda vegarins ég sé að stendur drengur
hann brosir svo breytt og úr augum hans skín
ég heyri hann kallar; komdu til mín

þessi drengur
hann bjargaði mér
það er honum að þakka að ég er hjá þér
hann gekk með mér um veginn minn
hann hjálpaði mér að finna tilganginn

Viljið þið vera svo væn að segja mér ykkar skoðun á þessu, hef ekki mikla trú á sjálfri mér í þessum efnum, væri gott að fá comment =)