Sit í gömlum sófa
sumarbústaðalykt
hvenær var loftað út hér seinast ?
Sænskur gæðasófi sem hefur munað fífil sinn fegri
brakar í furulöppunum, einn og einn gormur með útþrá
svo þetta heitir að slappa af

Af hverju vantar alltaf tvö spil í spilastokkinn ?
og síðustu síðurnar í reifarana sem liggja í tágarkörfunni á gólfinu ?

Fluga liggur á bakinu í gluggakistunni
sný henni letilega við með litlaputta nöglinni
einhver sagði mér að þetta væri kóknögl
hver drekkur kók úr nögl ?

Flugan rýs upp við dogg
dettur síðan aftur á bakið
ég tel lappirnar
virðast vera allar á sínum stað
hvað ætli sé að ?
sný henni við á ný
virðist ekki vera að hún vilji láta bjarga sér

Horfi á dauðastríð venjulegrar húsflugu
hún skríður inní rauf á karminum
spriklar, og deyr
stutt ævi
og ég í sumarfríi