Ó, hve mjög ég hata
helvíti og þig,
Líkaminn nær bata
en hvað með mig?

Eitt sinn þér ég unni
af öllum krafti og mætti
já eitt sinn það ég kunni
þar til einn dag,
því ég hætti

Er hönd svo heit og skjálfandi
skall á vanga mínum
Sótillur, blautur, bölvandi
flæddi blóð úr vanda þínum.

Ringluð og laus við vitið
mín fyrsta hugsun þú.
Samvisku minnar var bitið
hvað hafði ég gert nú?

Ó, hve mjög ég hata
örin mín og þig
Líkaminn nær bata
en hvað með mig?