Hví vildirðu bara horfa?
Hví vildirðu ekki sjá
Hvað ég var að verða,
Hver var mín von og þrá?
Hví vildirðu bara hlusta?
Hví vildirðu ekki heyra?
ég gerði allt sem ég kunni,
en þú vildir meira.
Hví vildirðu bara tala?
Hví vildirðu ekkert segja?
Það var ekkert nógu gott,
svo ég lærði snemma að þegja.
Hví vildirðu bara slá?
Hví vildirðu ekki snerta?
Það eina sem ég vildi,
var að vera
barn
í fangi móður.