Samdi þetta einn daginn, ætlaði að nota rím og höfuðstafi, en þar sem ég er svolítið latur ákvað ég að hafa þetta bara bunka af ferskeytlum, rímlausar (að mestu) og enga höfuðstafi (nema fyrir tilviljun)
Gjörið svo vel.
Ég gekk að sjónum
mælti til hans
“Gefðu mér fisk”
en hann henti í mig þangi.
Ég gekk til fjallsins
hrópaði til þess
“gefðu mér gull”
en fékk aðeins grjót
Ég gekk að skóginum
bað fallega
“gefðu mér timbur”
en fékk aðeins kvist.
Ég gekk þá heim
tók fram exi
sótti hakann
náði í netið.
Gekk að skóginum
hjó hvert tré
tók það og smíðaði
mikið skip.
Fór því næst að fjallinu
gróf úr því allt gull
uns það hrundi
og gróf skurð
Fór ég að sjónum,
veitti honum í skurðinn
lagði netið þvert yfir
veiddi allan fiskinn.
Nú hafði ég fellt skóginn,
brotið fjallið
tæmt sjóinn
og átti bát, fisk og gull.
Gekk því næst að konu minni
“Hérna, nú hef ég sigrað skóginn,
fjallið og sjóinn”
Ég brosti sigri hrósandi.
En kona mín sagði þá
“ekki bað ég þig um það
heldur um gull í einn hring,
eldivið og fisk í matinn.”
Því næst sagði kona mín
“nú hefur það sannast
að ég á aldrei að senda guðina
til að vinna mín verk.”