Við sitjum hér tvö ein við kertaljós og Kalt spaghettí.
Ekkert annað.
“Hvenær kemur rafmagnið aftur?”
Hugmynd.
Tómatsósa.
Við sitjum hér tvö ein við kertaljós og Kalt spaghettí með tómatsósu.
Ekkert annað.
Kertið útbrunnið.
Pastað búið.
Við sitjum hér tvö ein í myrkrinu.
Ljós birtist eins og bjargvættur frá eilífu myrkri rafmagnsleysisins.
Við sitjum hér tvö ein við rafmagnsljós og lokna martröð.
Ekkert annað.