Ég valdi þig einungis útaf innri fegurð
sem eins og vatnsdropi í eyðimörk
hefur gufað upp…
Ég hugsa um að fleygja þér,
beint í ruslið,
eins og miðstærð af sjeik
sem ég er búinn að drekka,
en ég hugsa mikið.
Ég veit samt ekki hvort ég geti hent þér
því nú er ég hrifinn af þinni ytri fegurð
ég hendi ekki krukkunni
þótt ég sé búinn með sætu sultuna úr henni,
Ég sé til…