stendur þú
brosir blítt til mín
og tindrandi augun hlæja
En eitthvað dregur þig fjær
og að lokum ertu alveg horfinn í ljósið
Ég reyni að komast nær
en eitthvað heldur fast í mig
Ég sit föst er myrkrið kemur
ljósið færist fjær
Loks er kominn dagur
og sem snöggvast opna ég augun
Ég vakna úr draumi
og finn fyrir vonsku
Því þig ég þekki ekki
eins og ég hafði vonast eftir
En ég vona að þú hvílir
í friðnum bjarta
og komir enn í draumum
út úr mínu hjarta
"All we have to decide is what we do with the time that is given to us"